» 0 hafa sagt sína skoðun
Ég ætlaði bara að láta ykkur vita að ég er kominn heim frá NewYork og þetta var æðisleg ferð í alla staði. Ég fer svo örugglega þangað aftur eins fljótt og ég kemst þangað. Mig langar eiginlega bara að búa þarna!!
Svo byrjar skólinn á morgun...veit eiginlega ekki hvað mér finnst um það en það er ekkert hægt að gera í því. Mér finnst sumarfríið búið að vera svoldið stutt...en veturinn verður bara skemmtilegur, ég veit það!
með kveðju Olga Rún
Ítalíuferðin langþráða er búin og ég get sagt að hún stóð FULLKOMNLEGA undir væntinum og mikið meira en það!
Hún var æðisleg og ítalarnir voru æðislegt fólk og það var líka svo gaman þegar þeir komu hinga í mánuðinum í viku til okkar. Þetta er bara svo vingjarnlegt fólk!!
En okkar ferð til Ítalíu var bara geggjuð!!Við sáum svo mikið af skemmtilegu dóti þarna og æðislegar borgir og sérstaklega Feneyjar sem standa upp úr eins og seinast líka. Þetta er bara svo æðislegt þarna að maður getur eiginlega ekki lýst því! Svo var líka mjög skemmtilegt á Rimini, meira að slappa af og skemmta ´ser á kvöldin þótt að sumir fengu nóg af næturlífi á endanum...
Myndirnar komnar inná!!
Núna sit ég bara heima og er í tölvunni eða glápi á sjónvarpið í þessari viku því ég fór íþessa aðgerð seinasta mánudag. Mjög óþægilegt núna og mikill sársauki ef ég er ekki á verkjalyfjunum en ég er glöð að þetta er búið...
Ég er samt að brjálast hérnaheima að vera ein svona lengi og komast ekkert út fyrir hús eða vilja það reyndar ekki því ég er svo bólgin að það er eins og ég sé með stærstuu höku á jörðinni...svo er ég líka bara á fljótandi fæði..ég prófaði að borða áðan en það var mjög vont að tyggja þannig að ég ´þurfti bar aað sleppa því. Mér finnst bara svo leiðinlegt að borða ekki alvöru mat heldur bara drekka allt!
En ég ætla að hætta að kvarta. Verslunarmannahelgin er á næsta leiti og ég ætla að fara ti l Akureyrar og tinna verður allavegna þarna og vonandi einhverjir fleiri líkaæ... hvað segiði stelpur?!!
Svo er það bara New york með mömmu! Mig hlakkar svo til því það verður örugglega æðislega gaman þarna. vil samt ekki hugsa of mikið um það því þá verð ég kannski of spennt en ég vil samt verða eitthvað spennt því það er svo skemmtilegt því áður en ég fór til ítalíu var ég ekkert spennt og upplifði aldrei tilkhlökkunina sem maður er venjulega með eins og þegar maður keyrir út á flugvöll eða eitthvað!! æææ...þið vitið hvað ég á við!!
Svo ætla nokkrar stelpurnar að fara í bíó í kvöld en ég kemst ekki því mig langar bara ekkert að fara út en ég ætla að plata tinnu til að fara með mér um helgina!! Það verður gott að komast út!!
Er að pæla í að fara að enda þetta...ætla aðeins að reyna að leggja mig...við sjáumst
» 1 hafa sagt sína skoðun
Nú þegar skólinn er búinn þá hef ég oft ekki neitt að gera. Eins og í dag og í gær...ég vaknaði og hafði ekkert að gera allan daginn. Ég vaknaði í dag klukkan 11 og svo hef ég ekki verið að gera neitt í allan dag. Ég er búinn að horfa á alla one tree hill þætti sem ég hef misst úr og og skoðað allar slúðursíðurnar. Ég hef bara ekki neitt að gera.
Annað líka..hvað er það við stráka sem lita hárið á sér ljóst og faraí ljós og nota hálfa brúnkukremstúbu á dag sem á að heilla stelpur. Ég er ekki alveg þessi týpa sem vill stráka sem líta út eins og stelpur og eyða jafn miklum eða meiri pening í útlitið. Þá gæti ég bara alveg eins verið með stelpu!! Strákar eiga eiginlega bara að vera strákar. Auðvitað er skemmtilegt og strákar eiga að hugsa svolítið í útlitið, nota rakspíra og husa pínku um hárið en halló...ekki eyða svona klukkutíma á baðinu á hverjum morgni!! Ég var nú bara að pæla í þessu
Á laugardaginn ákvað ég að reyna að finna mér bikini fyrir ítalíu. Ég vissi alveg að mig langaði í svona bikini þar sem hægt var að taka hlýrana af til að maður fái ekki far og ég byrjaði á því að fara um alla Smáralind og fann ekkert og fór svo í Kringluna og fann ekkert þar. Svo hringdi Andrea og Fanney í mig og Fanney benti mér á búð þar sem ég fann bikini!! Komst svo að því seinna um kvöldið að Tinna, Fanney, Sigrún og ég höfðum allar keypt okkur bikini á þessum stað!! Um kvöldið var svo afmæli hjá Andreu sætu . Við fórum í sund og fórum svo aftur heim til Öddu og borðuðum köku. Svo horfðum við á einhverja vúdú mynd sem ég skildi eiginlega ekki neitt í því við töluðum eiginlega allan tímann! . Svo seinna um kvöldið töluðum við bara saman og höfðum það notalegt.
Í gær kom afi heim og við höfðum kaffiboð fyrir hann. Gáfum honum köku og kaffi. Um kvöldið fórum ég og Fanney svo á rúntinn með Grím og vin hans og það var bara mjög skemmtilegt! .
Núna er ég bara að vinna alla dag til 6 og það er alveg ágætt bara en svo eftir 9 daga er það bara Ítalía!!. Mig hlakkar svo til en ég reyni samt að hugsa ekki of mikið um það því þá verður maður eiginlega bara of spenntur
Með kveðju, Olga Rún
» 4 hafa sagt sína skoðun
Ég er að segja ykkur kæru landsmenn að sumarið er komið til Íslands!! . Ég er búinn að vera sitjandi úti fyrir utan herbergisdyrnar mínar í allan dag að lesa risafurur og tímann og íslendingaþætti.....Í SÓLBAÐI!! Váá hvað ég elska íslenska sumarið! Allt verður svo grænt og þetta er svo all öðruvísi en sumarön á Spáni t.d. Þar er bara allt þurrt og brúnt og það er ekki grænn grasblettur nema þá hjá fólki sem er með gras í garðinum sínum. Hérna er allt úti í trjám og grasi og allt verður svo grænt á sumrin og sóleyjarnar og fíflarnir birtast og lífga upp á græna litinn með litagleðinni sinni!! . Og svo er nú ekkert slæmt að verða brúnn í leiðinni og fá far...alltaf gaman að koma inn og kíkja!!
En snúum okkur að skólanum því núna er hann bara að verða búin!!! . Þótt ég elski bekkinn minn og skólann minn út af lífinu er ég bara kominn með svo mikinn skoóleiða upp á síðkastið að ég er að drepast. Ég sakna ekkert smá vinkona minna sem ég er ekki búinn að sjá í vikur eða eitthvað þannig því ég dreg mig alltaf í hlé eða eitthvað þegar prófin eru í gangi. Ég bara hitti þær ekki og er bara hiema hjá mér og geri allt sem ég er buinn að trassa um veturinn . Ég er ekki einu sinni að læra en samt er það eittthvað sem hindrar mig í að hringja í stelpurnar!!
í gær fórum við í óvissuferð og þetta er bara alltaf jafnskemmtilegt!! . Við byrjuðum á að fara á listasafn Reykjavíkur held ég að það heiti og sáum UNDARLEGUSTU OG SKRÝTNUSTU listaverk sem ég hef augum litið. Sumt var bara krot á blaði og svo var eitt sem var nákvæmlega eins og eldfjall sem ég gerði í smiðum í 3 eða 4 bekk úr trjásagi og lími held ég!!! Svo voru nokkrar myndir sem var alveg búið að mála svart allan strigann og henda nokkrum hvítum málningarslettum á og svo á þetta að heita listaverk!! Ef þetta er það eina sem þarf til þá gæti ég orðið besti listamaður í heimi!! En ég ætla að hætta að kvarta!! . Næst fórum við og skoðuðum einhverja víkingaleifahús eða eitthvað...fattaði það ekki alveg! Nei bíddu...við gáfum öndunum fyrst og ég var ´buinn að gleyma hvað það er gaman!! Svo skemmtilegt að koma þarna og henda brauði til andanna og sjá þær berjast um það
Næst fórum við í grasagarðinn og borðuðum nesti í ÆÐISLEGU veðri og þetta var svo yndislegt að borða nestið svona öll saman og allir í svo góðu skapi og fara svo í eltingaleik á eftir og skemmta sér og vera krakki aftur!! Svo var leiðinni haldið í húsdýragarðinn þar sem við skemmtum okkur æðislega vel í vísindatjaldinu....ég væri nú alveg til í að búa á tunglinu þar sem ég er svona 11 kg en kannski ekkert svo mikið aá sólinni þar sem ég er svona 1000 og eitthvað kg!!
Að lokum var leðiinn haldið heim þar sem við fórum á trampólín og í pottinn og svo fengum við æðislega góðan hamborgara eftir á!! Jáá!! ég er kominn með trampólín!! . Kannski það borgi sig bara að suða..allavegna ef að hún Arna gerir það og maður fær svo að njóta þess!! . En svo vorum við Þórdís bara að horfa á sjónvarpið það sem eftir var af kvöldinu og svo skutlaði ég Þórunni, Himma og Þórdísi heim í lok kvölds!! Alltaf gott að hafa bílstjóra!!
En eins og ég sagði er ég bara búin að vera að lesa í dag og læra því það er stórt íslenskupróf á morgun og auðvitað vill maður standa sig vel!! ætli ég haldið ekki bara áfram að læra og stend mig bara vel á morgun!!
» 2 hafa sagt sína skoðun
Á dögunum fann hún Arna Rún mynd af nokkrum labradorhundum í blaðinu. Undir myndinni stóð að labradorhundar væru til sölu. Auðvitað eins og allir krakkar (og nokkrir unglingar...) varð hún Arna mjög spennt og sýndi mér og Aroni myndina og sagði okkur að mamma og pabbi ætluðu að kaupa hund!! Ég og Aron urðum ekkert smá spennt og sérstaklega ég því mig hefur ALLTAF langað í hund, áður en ég fékk Snotru og svo hefur mér líka alltaf langað í eftir. Mamma og pabbi sögðu alltaf að við gætum ekki fengið okkur vegna þess að við ferðuðumst svo mikið og gætum ekkert alltaf fundið pössun fyrir hundinn og það væri líka svo rosalega oft mikið mál að taka hundinn með! Þegar við föttuðum að Arna var að plata varð ég ekkert smá pirruð út í hana!!! En það sem ég ætlaði að segja var að þegar þetta gerðist mundi ég eftir þegar ég og Sóley vorum búin að gera áætlun um hvernig við ætluðum að fara að því að fá hund. Þegar við værum orðin 18 ætluðum við að flytja að heiman, ég til Sóleyjar og Sóley til mín. Við ætluðum að búa í burtu í svona 3 daga og kaupa okkur hund og svo ætluðum við að flytja aftur heim! Vá hvað okkur fannst þetta góð hugmynd!!!! . Við vorum ekkert smá sniðugar!
Ég fór að pæla í því af hverju allir vildu hund (nema kannski Tinna), af hverju allar litlar stelpur vildu verða prinsessur og flestar bera í sér svona litla þrá í að verða prinsessur alla ævi!! og af hverju allir strákar vilja verða Batman eða einhverjar ofurhetjur! Er þetta eitthvað sem samfélagið stimplar bara in í okkur að við viljum og bara þeir sterku ná að standast þessa pressu um hvað við eigum að vilja.
Ef svo er þá væri ég ekki ein af þessum sterku því mig hefur alla ævi langað að verða prinsessu og ég horfði á endalausar prinsessumyndir þegar ég var lítil!..og geri það reyndar ennþá, ég kann Fríða og dýrið ALGJÖRLEGA UTANAÐ!! enda elska ég þessa mynd. Ég get horft á hana endalaust!
Afi keypti alltaf nýjustu Disney myndirnar handa mér og ég man sérstaklega eftir því þegar hann keypti handa mér Þyrnirós og ég gisti hjá honum. Við fórum á McDonalds fyrr um kvöldið og fórum svo heim til afa og horfðum á Þyrnirós 3. sinnum!!! Þegar ég pæli í því þá skil ég algjörlega ekki hvernig hann afi minn nennti því að horfa á Þyrnirós?! . En þegar við vorum búin að horfa á Þyrnirós þrisvar sinnum og ætluðum að fara að sofa fékk ég svo mikla heimþrá að afi skutlaði mér heim og fór svo aftur heim til sín!! Guð hvað ég hef örugglega stundum verið pirrandi!! og hvað hann afi elskaði mig mikið fyrir að hafa nennt að gera þetta!
Ætli þetta hafi ekki verið svona blogg minninga!! Kannski þið vitið eitthvað meira um mig núna Með elskulegri kveðju...Olga Rún
» 6 hafa sagt sína skoðun
Núna hellast prófin yfir flesta námsmenn á landinu við mismikla ánægju. Ekki er oft mjög gaman að hanga inni í góðu veðri og læra á meðan maður horfir á fólkið labba úti í ´góða veðrinu. Það er nú samt ekki búið að vera rosalega gott veður í dag...rigning og skýjað í allan dag, ákkurat daginn sem ég hefði alveg aðeins getað farið í sólabað!! En er það samt ekki alltaf þannig....sól þegar maður ÞARF AÐ LÆRA og annars rigning þegar ekkert svo erfitt próf er á næsta leyti!! Já, svona er Ísland oft leiðinlegt!!
En ég ætla að hætta að kvarta og segja ykkur frá mínu ekkert það áhugaverða lífi!
Helgina eftir að ég bloggaði seinast fór ég í partý með nokkrum vinkonum. Það var bara mjög gaman og ég og Andrea fórum bara að sofa þegar pottapartýið stóð sem hæst!! ...(skrýtið með mig að ég vil nú bara alltaf fara að sofa þegar allt stendur sem hæst, fór heim af nemó einum og hálfum tíma áður en ballið kláraðist þótt ég ætti frí daginn eftir og það eru fleiri dæmi þótt ég man þau ekki núna!!). Við vorum vaknaðar klukkan 8 held ég...ekki spurja af hverju?! . ALLIR sofnuðu aftur í stofunni en ég fór nú bara á fætur, eldhress eins og venjulega!! . Fékk mér nú bara að borða og gekk frá dótinu mínu sem var út um allt hús!! . Hringdi svo bara í mömmu þegar ég sá að enginn af stelpunum var á leiðinni að vakna og fór bara heim. Hún var ekkert smá hissa þegar ég var komin heim klukkan 10 um morguninn en samt mjög glöð!! . Ég er nú alltaf til í að kæta hana mömmu mína!! . Svo fórum við nú bara eitthvað niðrí bæ á eftir og á útsölu þar sem ég fann mér nú nokkur föt...manni vantar nú alltaf ný föt!!
Seinasta helgi var mjög róleg enda stærðfræðipróf á þriðjudaginn sem má nú alveg nefna að ég stóð mig bara mjög vel í og er ótrúlega glöð að vera komin í sumarfrí í stærðfræði!!! Júhúúúú!!!! Núna langar mig bara ótrúlega mikið að hitta nulurnar mínar!! . Hvað eruð þið nú alltaf að gera og hvað segið þið um eina sumarbústaðarferð eða grillpartý fljótlega?! . En ég, Adda, Eyja og Hrönn fórum á the hills have eyes og ég get sagt að seinni helmingurinn var nú frekar ógeðslegur og það er eiginlega vægast sagt þótt að þessi mynd hafi nú ekki toppað Hostel en mig langaði nú bara að fara að háskæla á þeirri mynd, mér leið svo illa!! En alltaf gaman að sjá hvað EYja er glöð eftir hryllingsmyndir!! . Dansandi um bíósalinn..... Algjör stuðbolti sætasta!! . Á eftir rúntuðum við smá og fórum svo bara heim enda þurfti allavegna ég að vera dugleg að læra daginn eftir! Ótrúlegur dugnaður í mér!!
í gær fór ég svo bara í prófið og svo í ræktina og var svo bara að lesa tímarit það sem eftir var dagsins og fór svo í pottinn og ætlaði að ná í smá sólargeisla en Aron og Arna voru ekki alveg að ætla að láta það gertast þannig að sú pottaferð endaði með vatnsslagi!!
Ég held að þetta sé nóg þannig að ég lýk þessu nú bara og vona bara að sem flestum gangi vel í prófunum!! . Sjáumst svo bara hress og kát eftir þau og hver veit nema ég bloggi hérna einhvern tíman seinna áður en prófin klárast!!
Jæja, núna er svoldið langt síðan ég bloggaði seinast og margt hefur gerst síðan þá.
Í fyrsta lagi er ég orðin 17 og þar með kominn með bílpróf!! . Það er mjög gaman að geta keyrt um út um allt þótt ég tími ekki alveg að kaupa mér bíl strax og þurfa að borga bensín af honum þannig að þangað til fæ ég bara bílinn lánaðan hjá mömmu og pabba enda eru þau svo yndisleg að lána mér hann oftast. Svo hélt ég líka alveg ágætlega velheppnað afmæli þótt ég segi sjálf frá. Ég held að það hafi bara gengið alveg með ágætum.
Um páskana þá skelltum við okkur til Eskifjarðar til að fara í fermingu til Guðnýjar frænku og til að komast á skíði með tveggja daga stoppi á Akureyri. Við lögðum af stað á föstudagskvöldið og vorum komin til Akureyrar um 11 leytið um kvöldið. Daginn eftir fórum við á snjósleða sem var GEGGJAÐ GAMAN!! Það er mjög líkt go-karti nema það er bara í snjó. Maður verður nú að gera þetta oftar! . Um kvöldið fórum við svo á litlu hryllingsbúðina sem var bara mjög skemmtileg þótt ég hafi skammast mín svoldið fyrir að vera sú eina sem öskraði í endann!!
Á sunnudaginn lögðum við af stað til Eskifjarðar og ferðin gekk bara mjög vel framan af og við stoppuðum einu sinni til að hjálpa einhverjum túristum sem voru í vanda og voru búinn að festa smábílinn sinn í skafli og út af því hversu góðhjörtuð við vorum hjálpuðum við þeim að losa sig.
En svo þurfti hún Arna Rún að taka upp á því að æla og það kom ÓGEÐSLEG fýla í bílnum og hún er ennþá ekki farinn!! Þetta er ógeðslegt þegar eitthvað svona gerist því þá er lyktin sem var í bílnum alveg farinn og kemur aldrei aftur!
En við komumst til Eskifjarðar á endanum.
Á mánudeginum þurfti ég svo að verða veik!! Af hverju þarf ég ALLTAF að verða veik í fríum. Ég held að guð hati mig eða eitthvað og vilji refsa mér fyrir eitthvað!! Ég var veik þangað til á miðvikudaginn en þá fórum við á skíði og þetta er æðislegt. Það er svo langt síðan ég fór seinast á skíði og ég var búinn að gleyma hvað þetta er yndislegt.
Á fimmtudaginn fermdist Guðný og þetta gekk alveg áfallalaust allur dagurinn. Kökurnar voru góðar og margir komu þótt ég hékk nú bara mestallan tima inni í herbergi og horfði bara á spólur! .
Föstudagurinn fór bara í skíði allan daginn.
Á laugardaginn fórum við í sund til Egilstaða.
Páskadagurinn fór bara í að slappa af, borða nammi og horfa á sjónvarpið, sem sagt, algjör letidagur
Í gær lögðum við svo af stað heim og við stoppuðum á Höfn og fengum okkur að borða bestu aspassúpu sem ég hef fengið. Hún var ótrúlega góð. Í gærkveldi hitti ég svo stelpurnar. Ég var ótrúlega glöð að hitta þær, búinn að sakna þeirra svo mikið!!!!
» 3 hafa sagt sína skoðun
Ég ákvað nú að skella inn einni bloggfærslu hérna inná, langt síðan ég bloggaði!! . En það er nú margt búið að gerast síðan seinast þótt ég muni það nú ekki allt núna. Það var afmæli hjá Sóley sem var já..skrautlegt og svo var afmæli hjá Tinnu seinasta föstudag sem var mjög skemmtilegt. Um helgina var óvissuferð þar sem við fórum í svolítið rallý um eitthvað fjall í snjónum en snúðum svo við því það var alltof mikill snjór!! Við keyrðum svo eitthvert og borðuðum nesti og fórum svo í sund sem var mjög þægilegt, það var ekkert smá kalt úti. Við ´fórum svo á veiðisafnið á S-bæ einhverjum. Ég held að hann hafi heitið Stykkishólmur eða eitthvað, ég man það bara ekki!! Um kvöldið borðuðum við svo mat og svo vorum ég og Þórdís bara að horfa á sjónvarpið og fullorðna fólkið var bara niðri að tala saman, eins og venjulega!
Í kvöld er svo Kvennó grímuball. Ég ætla að vera magadansmær, vona bara að búningurinn minn heppnist eins og ég vil. Og svo er það bara bílprófið á mánudaginn!! Ég verð nú að ná þessu, það þýðir nú ekkert annað!! . En ég þarf að fara, tíminn er að fara að byrja,
Verið þið sæl og við sjáumst!!
» 11 hafa sagt sína skoðun
Ég náði bóklega!!
p.s. munið eftir blogginu fyrir neðan
Ég hef nú frekar lítið að segja núna því ég bloggaði allt á síðuna hjá mér og Fanney sem er búið að gerast hjá mér undanfarið. Ákvað bara að blogga aðeins hérna líka fyrst að það var svona langt síðan ég bloggaði.
Ég var að hugsa um gaggó í gær og maður skildi aldrei hvað maður hafði það gott þegar maður hefur það. Ég held að það sé kaldhæðnin við lífið. Sama hvað maður reynir að njóta hlutanna á meðan þeir eru til staðar þá er sannleikurinn sá að það er ekki hægt að skilja í alvöru hvað maður missti af fyrr en maður er búinn að upplifa að hafa þá ekki! En ég á margar minningar frá Gaggó og ég held að þær bestu séu frá 10. bekk. Þessi 2 litlu böll sem maður fór á á ári og fannst þetta mesti stórviðburður sem gerðist, maður var alveg í sjokki yfir að vera úti til 12 og stressaður yfir að vera ógeðslega ljótur og myglaður daginn eftir og maður VARÐ bara alltaf að kaupa nýjan kjól fyrir hvert ball og maður var byrjaður að hlakka til að fara á böllin kannski mánuði á undan það var! Ákvað að skella inn nokkrum myndum úr Gaggó, ykkur til yndis og skemmtunnar!
Ein frá Árshátiðinni 2005
Okkar víðfrægu myndaflipp, oftast með Sóley í einhverju hlutverki
Og að lokum ein sem fær mig alltaf til að brosa, það var svo gaman hjá mér og Ingu þarna!! . Okkar seinustu augnablik í Gaggó Mos
Ég fer næstum því að gráta bara við að skoða myndirnar út útskriftarferðinni, það var svo gaman . Þótt að allir eru ekki sammála mér, *hóst, hóst, Andrea*!!
En ég bætti við myndadálki með nokkrum gömlum og góðum myndum! Njótið
Ykkar Olga Rún
P.s. hugsiði til mín klukkan 3 í dag, er a fara að taka bóklega prófið mitt . Krossleggjum fingurna og vonum að ég nái
Febrúar kominn og Nemó búið! . Það var geggjað stuð á Nemó og Fanney æðislega kom með mér og ég held að hún hafi nú bara skemmt sér ágætlega líka . En Fanney skrifaði allt um þetta á síðunni okkar.
Það er MJÖG LANGT síðan ég bloggaði seinast og ég er aftur byrjuð í ökutímunum og búinn með ökuskólann númer 2. En ég tók próf í seinasta skiptinu og það kom í ljós að ég þarf víst að lesa þessa bók en það má fá 3 villur í fyrri hlutanum en ég fékk 12!! Planið var að lesa hana í dag en kannski er ég bara svona ógeðslega skólaleið að ég geri allt til að sleppa því að læra því ég er búin að taka til í öllu ´húsinu í staðinn fyrir að lesa þessa bók! En ég fór nú í ökutíma áðan þannig að ég er nú ekki búinn að vera bara að taka til í dag
Mamma og pabbi fóru áðan upp í bústað og ætla að halda þorrablót þar sem ég ímynda mér að samanstendur af helling af þorramat sem verður ekki borðaður nema hangikjötið, flatkökurnar og harðfiskurinn og svo borðar nú pabbi hákarl(en hann má nú samt ekki borða allt, eitthvað þarf að vera eftir handa mér ), bjór og ýmsum öðrum tegundum af víni og svo mikið af söng og tali eins og flest þorrablót fara nú . Arna fór í pössun til frænku minnar og ég og Aron verðum bara heima í kvöld með Þórdísi frænku okkar fyrst að ég var búinn að lofa pabba að vera heima! Ooo...ég er svo góð dóttir.
Ég veit nú ekki hvað ég á að segja meira þannig að ég ætla bara að enda þetta núna.
Ætli ég skuldi ykkur ekki eina færslu hérna. Það er svolítið langt síðan ég bloggaði seinast .
Það er búið að vera svolítið mikið að gera eftir jólin, bæði í skólanum og í flautunni. Þetta byrjaði bara með krafti strax eftir jólin og ég er strax kominn með 3 bækur að lesa í skólanum og svo auðvitað ökunámsbókina til að ég geti nú fengið þetta bílpróf þegar ég verð 17 en ég ætla nú að reyna að fá það þegar ég á afmæli
Um seinustu helgi fór ég í leikhús með mömmu á föstudaginn að sjá Carmen sem var bara mjög fínt og svo fór ég í óvissuferð með fjölskyldunni og Þórunni og co. á laugardaginn (Mjög gaman, langt síðan ég hitti þau) og svo fórum við nokkrar stelpur út að borða og fórum svo á Hostel sem var by the way ÓGEÐ!! . Svo fórum við nú bara heim og kvöldið var ekki alveg að gera sig eins og við plönuðum það vegna pirrings, svefnleysis og ýmissa annarra vandamála!! .
Núna um helgina fór ég og Fanney í bíó á föstudaginn á mynd með mjög asnalegu nafni: The Foooog!!!. Hún var nú ekkert sérstök en ágæt afþreying samt. Svo á laugardaginn vaknaði ég, Arna, mamma og Aron snemma og ætluðum að fara á skíði en það rigndi bara svo mikið að við ákáðum bara að sleppa þessu og ég og mamma enduðum nú bara niðrí í bæ um daginn. Um kvöldið fór ég svo í afmæli hjá Fanney sætu og það var bara mjög gaman. Við borðuðum mjög góðan mat og opnuðum pakka og svo seinna fórum við í keilu sem FAnney var ekki búinn að segja okkur að við ætluðum í þannig að það var mjög mikil spenna í kringum þetta allt saman. Ég fór svo í svoítið flipp niðrí Keiluhöll og ég held nú að fólkinu í kringum mig hafi örugglega þótt ég MJÖG pirrandi en ég skemmti mér nú samt konunglega
Kossar og Knús, Olga Rún
» 5 hafa sagt sína skoðun
Nú er árið 2006 gengið í garð og ég er bara frekar sátt við árið sem er að líða. Þetta var mjög viðburðaríkt ár hjá mér:
Og svo gerðist líka margt annað en ég bókstaflega nenni ekki að vera að reyna að hugsa það
Um síðustu helgi fór ég til Hornafjarðar í fertugsafmæli til konu frænda míns og það var alveg ágætt. Það er alltaf þannig að maður hefur EKKERT að gera í margar vikur og svo loksins þegar eitthvað gerist gerist allt á sama tima og maður nær ekkert að njóta þess sem maður er að gera almennilega ´því það er svo mikið annað að gerast sem maður missir af!
Ég held að ég ætti að slútta þessu ömurlega bloggi og við sjáumst bara,
Olga Rún
» 17 hafa sagt sína skoðun
Já, þessi dásamlegu jól!! Þetta er æðislegur tími og algjörlega frábært að vera til. Reyndar var það ekkert svo skemmtilegt þegar það rigndi á aðfangadagskvöld en það var æðislegt þegar ég vaknaði í morgun og það var kominn snjór. Það er alltaf svo mikil kyrrð yfir öllu þá!! .
Jólin hjá mér voru bara mjög fín. Ég svaf til svona 11 á aðfangadag en það var samt ekki svo mikil afslöppun því ég var alltaf að hlaupa út um allt til að reyna að redda að pakka inn fyrir alla í þessari fjölskyldu!! Það er eins og ég sé sú eina sem kann að pakka inn. Svo borðuðum við rjúpur og meðlæti um kvöldið og svo var ís og möndlugrautur en ég vann nú samt ekki möndluna Það er alltaf næsta ár
Ég fékk skíði frá mömmu og pabba, tösku og föt og ég var bara mjög ánægð með það og svo fékk ég helling af öðru dóti en ég nenni samt ekki að skrifa um það hérna núna. Í gær og í dag slappaði ég svo bara af og er búinn að taka það mjög rólega. Í gær þá fór mamma aðeins með mér út að keyra á bílnum hans Valla því hann er beinskiptur til að athuga hvort ég mundi eftir öllu og ég held að ég muni bara eftir flestu. Þetta rifjast alltaf svo fljótt upp aftur.
Svo frétti ég að Bylgja, kona frænda míns, er að verða fertug og ætlar að halda stórafmæli 6 og 7 janúar og þau búa á Hornafirði og það ætla eiginlega öll fjölskyldan að koma og það verður SVO GAMAN!!:. Mig hlakkar ekkert smá mikið til. Svo sagði mamma mér líka að við ætlum að verða eitthvað með Þórunni og Himma á Gamlárskvöld sem er mjög skemmtilegt! . Við borðum heima bara og svo förum við til þeirra held ég seinna um kvöldið!!.
Það er bara allt eitthvað svo gaman núna! Mér líður svo vel og það gengur bara allt einhvern vegin upp!.
Og ef þú lest þetta Ragnheiður þá verðurðu að koma og ná í jólagjöfina þína!! Fljótlega!!
Með Jólakveðju, Olga Rún
» 9 hafa sagt sína skoðun